Í Jarðhitagarði ON við Hellisheiðarvirkjun í Sveitarfélaginu Ölfusi, er leitað leiða til að auka fjölbreytta notkun á varma, rafmagni, vatni og jarðhitalofttegundum frá virkjuninni. Fjölbreytt notkun jarðhitans getur aukið hagkvæmni og eflt umhverfisvænan rekstur og nýsköpun í atvinnulífi. Yfirlit yfir orkutengda auðlindastrauma sem unnt er að nýta í starfsemi í Jarðhitagarði sést á myndinni.
Einstakt loftslagsverkefni
Nýjasta dæmið um bætta nýtingu auðlindastrauma er að ýmis orkutengd aðföng eru nýtt af svissneska nýsköpunarfyrirtækinu Climeworks. Fyrirtækið tók í notkun á árinu 2021, undir merkjum svokallaðs ORCA-verkefnis, loftsugur í Jarðhitagarði ON sem fanga um 4.000 tonn af koltvíoxíði úr andrúmslofti árlega og steinrenna það í berglögum í samstarfi við Carbfix og Orku náttúrunnar.
Vetnisframleiðsla
Orka náttúrunnar framleiðir vetni við Hellisheiðarvirkjun í tilraunaskyni sem er hluti af þróunarverkefni á vegum Evrópusambandsins, Hydrogen Mobility Europe. Orkuframleiðsla í virkjuninni er nýtt til vetnisframleiðslu á þeim tímum sem minni eftirspurn er eftir rafmagni og nýtist vetnið fyrir almenning og atvinnulíf vegna orkuskipta í samgöngum.
Þá nýtir alþjóðlega sprotafyrirtækið VAXA (áður Algaennovation) orkutengd aðföng í smáþörungaverksmiðju í Jarðhitagarði ON og skiljuvatn frá Hellisheiðarvirkjun er notað til framleiðslu GeoSilica á fæðubótarefnum. Talsvert af koltvíoxíði fellur til við raforkuframleiðslu á Hellisheiði. Ýmis sprotafyrirtæki hafa sýnt áhuga á því að nýta koltvíoxíðið og fleira frá virkjuninni. Í Hveradölum, þeirri fornu skíðaparadís, er baðlón í undirbúningi sem nýta mun vatn og varma sem fellur til við orkuvinnsluna í Hellisheiðarvirkjun.
Ríkar kröfur eru gerðar til fyrirtækja sem ætla að starfa í Jarðhitagarði ON vegna vatnsverndar, ásýndar, ónæðis og umgengni. Á byggingatíma verkefna er gerð krafa um endurnýtingu gróðurþekju sem fellur til. Hún er notuð í frágang þegar jarðvinnu líkur eða nýtt annarstaðar þar sem hennar er þörf.