Lán með ábyrgð eigenda

Með styrkari fjárhag Orkuveitu Reykjavíkur hefur fyrirtækið í vaxandi mæli getað fengið lán til fjárfestinga eða endurfjármögnunar án þess að eigendur OR standi í ábyrgðum fyrir lánunum. Með því er dregið úr áhættu sveitarfélaganna sem eiga OR – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – af eignarhaldinu.

Frá árslokum 2010 til ársloka 2021 hefur hlutfall fjárhæðar þeirra lána sem hvíla á OR og njóta ábyrgðar eigenda fallið úr 93% í 42% og fjárhæðin úr 209 milljörðum króna í 69,5 milljarða, sem er lækkun um 66,7%.

Lán með ábyrgð eigenda og án