U3 Orkunotkun

Samstæða OR vinnur endurnýjanlega orku, rafmagn og heitt vatn, úr jarðvarma og vatnsafli og notar sjálf rúmlega 11% af framleiddu rafmagni og tæplega 1% af framleiddu heitu vatni.

Jarðefnaeldsneyti, einkum díselolía, og metan eru nýtt í tengslum við framkvæmdir og rekstur samstæðu OR. Þar sem allt eldsneyti er keypt af þriðja aðila er um óbeina orkunotkun að ræða.

Hlutfall beinnar orkunotkunar (rafmagn og heitt vatn) samstæðu OR er 99,9% og óbeinnar orkunotkunar (jarðefnaeldsneyti og metan) 0,1%.