Fjöldamargir þættir ráða því hvort starfsemi OR og dótturfyrirtækjanna - Veitna, Orku náttúrunnar, Gagnaveitu Reykjavíkur og Carbfix - er sjálfbær. Í þessari samþættu skýrslu er gerð grein fyrir þeim þáttum sem OR telur mikilvægasta. OR lítur því á Ársskýrslu hvers árs sem sjálfbærniskýrslu fyrirtækisins. Þessi skýrsla er hluti ársreiknings Orkuveitu Reykjavíkur sem birtur er opinberlega í kauphöll. Á vefjum fyrirtækjanna innan samstæðunnar er jafnframt að finna ýmsar upplýsingar um umhverfismál, fjármál og starfsmannamál sem uppfærðar eru oftar en árlega.
Auk Ársskýrslu skilar OR margvíslegum gögnum til opinberra eftirlitsaðila í samræmi við starfsleyfi fyrirtækjanna í samstæðunni. Þar eru umfangsmest ýmis gögn um auðlindanýtingu hvers árs. Með aðild að ýmsu samstarfi skilar OR einnig opinberum skýrslum um ýmsa sjálfbærniþætti starfseminnar. Þar má nefna:
- Framvinduskýrslur vegna útgáfu grænna skuldabréfa
- Skýrslur til Climate Disclosure Project
- Framvinduskýrslur verkefna sem skráð hafa verið á vefinn heimsmarkmidin.is
- Skýrslur til Global Compact
Á árinu 2018 kom út skýrsla í kjölfar alþjóðlegrar úttektar á sjálfbærni Hellisheiðarvirkjunar. Úttektin er byggð á matslykli fyrir jarðgufuvirkjanir – Geothermal Sustainability Assessment Protocol (GSAP) – sem er í þróun á vegum íslenskra stjórnvalda og jarðgufufyrirtækjanna í landinu. Hellisheiðarvirkjun er fyrsta virkjunin í rekstri sem honum var beitt á. Meginniðurstaða sjálfbærnimatsins var að Hellisheiðarvirkjun hefur lítil neikvæð áhrif á umhverfi og samfélag og mikilvæg jákvæð félagsleg og hagræn áhrif, einkum með vinnslu á hreinni og ódýrri raforku og heitu vatni til að mæta þörfinni á höfuðborgarsvæðinu. Þó leiddi matið í ljós frávik frá fyrirmyndarframmistöðu sem Orka náttúrunnar er að ráða bót á.
UFS mat
Tvö matsfyrirtæki leggja mat á frammistöðu Orkuveitu Reykjavíkur hvað varðar umhverfis-, samfélags- og stjórnháttaþætti starfseminnar. Slíkt mat er hluti lánshæfismats Moody's og íslenskir fjárfestar hafa fengið matsfyrirtækið Reitun til að leggja slíkt mat á frammistöðu samstæðunnar. Matskýrslur fyrirtækjanna eru viðfestar.
Viðaukar og annað ítarefni
- Áhrifaskýrsla grænnar fjármögnunar OR 2021 - endurskoðuð (EN) (PDF)
- Samantekt á UFS áhættumati Reitunar á OR - Okt 2021 (PDF)
- Moodys Rating Action - OR - Sep 2021 (PDF)
- Skýrsla um sjálfbærni Hellisheiðarvirkjunar (PDF)
- Tengsl starfsemi OR 2020 við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
- Reykjavík Energy 2021 Green Finance Allocation and Impact Report - CORRECTED (PDF)