Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur er skipuð sex manns. Fimm, þar á meðal formaður og varaformaður, eru kjörnir af borgarstjórn Reykjavíkur og einn af bæjarstjórn Akraness. Sveitarstjórn Borgarbyggðar tilnefnir áheyrnarfulltrúa í stjórn sem og stjórn Starfsmannafélags Orkuveitu Reykjavíkur.
Formaður stjórnar OR má ekki taka að sér önnur störf fyrir fyrirtækið.
Stjórn ræður forstjóra fyrirtækisins, semur starfslýsingu hans og gengur frá starfslokum. Forstjóri annast allan daglegan rekstur fyrirtækisins og fer með eignarhluti í dótturfélögum OR. Forstjóri OR má ekki vera í stjórn OR og stjórnarmenn í OR mega ekki sitja í stjórn dótturfélags.
Kveðið er á um verkaskiptingu forstjóra og stjórnar í starfsreglum stjórnar og starfslýsingu forstjóra en forstjóri situr ekki í stjórnarnefndum.
Forstjóri OR situr ekki í stjórnum dótturfélaga en í þeim skulu þrír fulltrúar vera starfsmenn OR, þar af a.m.k. einn úr stjórnendahópi OR. Allar stjórnir dótturfélaga OR eru skipaðar fimm mönnum, þremur úr starfsliði OR-samstæðunnar og tveimur utanaðkomandi sérfræðingum á starfssviði viðkomandi fyrirtækis.
Hér er litið svo á að fólk sem á sæti í sveitarstjórn eigendasveitarfélaganna sé ekki óháð og það sama á við um það starfsfólk samstæðunnar sem á sæti í stjórnum dótturfélaga. Í lánshæfismati Moody's á Orkuveitu Reykjavíkur í september 2021 segir þó að fyrirtækið telji sjálfstæði stjórnarinnar „veikt“ þar sem aðaleigandinn velji fimm af sex stjórnarmönnum. Á móti vegi þó sú venja Reykjavíkurborgar að velja ópólitíska sérfræðinga til stjórnarsetu, að stilla pólitískum afskiptum í hóf og hin opinbera eigendastefna með m.a. vel skilgreindum fjárhagslegum markmiðum.
Hlutfall óháðra fulltrúa meðal stjórnarfólks OR hefur verið óbreytt frá árinu 2010.
Stjórnarfólk óháð félögum í samstæðu OR eða eigendum þeirra
Í árslok 2021 áttu þessi sæti í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur:
- Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, formaður, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands.
- Dr. Gylfi Magnússon, varaformaður, prófessor í hagfræði og fjármálum við Háskóla Íslands.
- Vala Valtýsdóttir, formaður starfskjaranefndar stjórnar, lögmaður og sérfræðingur í fyrirtækjalögfræði.
- Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi í Reykjavík.
- Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík.
- Valgarður Lyngdal Jónsson, bæjarfulltrúi á Akranesi.
Borgarbyggð og Starfsmannafélag OR eiga áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundum. Þeir eru:
- Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, formaður byggðaráðs frá Borgarbyggð.
- Unnur Líndal Karlsdóttir, formaður Starfsmannafélags Orkuveitu Reykjavíkur.
Stjórn OR leggur áherslu á gegnsæi í störfum sínum og fundargerðir stjórnarfunda auk fundargagna, sem ekki ríkir trúnaður um, eru öllum aðgengilegar á vef fyrirtækisins. Í fundargerðirnar eru meðal annars skráðar allar ákvarðanir stjórnar og stjórnarmenn hafa rétt á að bóka stuttlega um afstöðu sína til einstakra mála.