Heimsfaraldur kórónuveirunnar hafði afgerandi áhrif á starfið hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækjunum árin 2020 og 2021. Sérstakan vörð þarf að standa um kjarnaþjónustu samfélaga á borð við veiturekstur og orkuvinnslu. Faraldurinn og viðbrögð við honum leiddu líka skýrlega í ljós að öflug gagnaveita er grundvallarþáttur í því hversu sterkt viðnám samfélög hafa við ógn af þessu tagi. Vegna þessara almannahagsmuna, sem OR er trúað fyrir, voru viðbrögð við kórónuveirunni kröftug og þau báru árangur.
Ekki er vitað til þess að neinn hafi smitast á vinnustaðnum og engin hópsmit komu upp á árunum 2020 og 2021. Enginn þjónustubrestur varð á þessum árum vegna faraldursins.
Neyðarstjórn og upplýsingamiðlun til starfsfólks
Neyðarstjórn OR kom fyrst saman vegna yfirvofandi heimsfaraldurs í janúar 2020. Neyðarstjórnina skipa forstjóri, framkvæmdastjórar og framkvæmdastýrur, öryggisstjóri, umhverfisstýra, stjórnandi samskipta og samfélags og starfsmaður í öryggis- og heilsuteymi. Á meðal ráðstafana sem gripið hefur verið til frá upphafi faraldursins eru;
- tilmæli um tilkynningar um ferðalög til útlanda snemma faraldursins, áður en landamæraskimun hófst,
- tilmæli um að ekki væri mætt til vinnu væri starfsmaður eða heimilisfólk með flensulík einkenni,
- sérstakar varnir stjórnstöðvar, meðal annars með algerum aðskilnaði vakta,
- sérstakar varnir vinnuflokka og annars sérhæfðs starfsfólks, meðal annars með því að tryggja aðskilnað hópa,
- samfelld fræðsla, upplýsingagjöf og hvatning til starfsfólks,
- heimavinnuskylda,
- fjöldatakmörk,
- almennar sóttvarnir,
- grímuskylda þar sem nándarmörkum var ekki viðkomið,
- reglur og takmarkanir settar á umgengni um mötuneyti starfsfólks,
- tímabundið bann við að fundað yrði með utanaðkomandi nema á fjarfundi og síðar takmarkanir á fundum með utanaðkomandi í húsakynnum OR,
- áskoranir sendar starfsfólki um að viðhafa sóttvarnir utan vinnutíma.
Varanlegar breytingar vegna faraldursins verða nokkrar. Eftir að heimavinna starfsfólks varð algengari, sem margt starfsfólk kunni vel, hafa verið gerðir fjarvinnusamningar við um fjórung alls starfsfólks samstæðunnar.
Lokunum fækkaði 2020 en fjölgaði svo
Á undanförnum árum hefur OR unnið markvisst að umbótum á innheimtu viðskiptakrafna. Áhersla er á að hjálpa fólki sem lendir í vanskilum út úr þeim. Úrræðum þjónustufulltrúa til að leysa úr málum hefur verið fjölgað og skerpt hefur verið á innheimtuferlinu öllu. Þetta hefur átt þátt í því að vanskil hafa minnkað og lokunum vegna vanskila fækkað mjög.
Þegar efnahagsáfall vegna COVID-19 var fyrirséð, snemma árs 2020, var ákveðið að sýna enn frekari sveigjanleika við innheimtu og lokunum vegna vanskilaði fækkaði milli áranna 2019 og 2020 þótt vanskil hafi aukist, einkum hjá fyrirtækjum. Lokunum vegna vanskila fjölgaði svo á árinu 2021, en þá lögðu allnokkur fyrirtæki upp laupana þrátt fyrir viðspyrnu og styrki stjórnvalda gegn áhrifum faraldursins.
Fjöldi lokana vegna vanskila 2006-2021
Áhrif á kolefnisspor
Áhrif faraldursins og viðbragða við honum á kolefnisspor OR var og er ennþá margþætt. Margar breytinganna draga úr losun en aðrar auka hana. Losun vegna flugferða þurrkaðist nánast út á árunum 2020 og 2021. Stór hluti starfsfólks vann heima stóran hluta þessara ára. Við það dró úr ferðum til og frá vinnu. Ferðum á fundi innanlands eða innanbæjar stórfækkaði einnig með fjarvinnunni.
Á móti vegur að stór hluti starfsfólks vinnur að framkvæmdum og til að tryggja sóttvarnir var þeim skipt í hópa og fékk hver hópur bíl úr bílaflota OR til afnota og til að ferðast milli heimilis og vinnu. Það jók akstur margs starfsfólks.