OR samstæðan hefur verið í fararbroddi í nýsköpun og þróun á sviði loftslags- og umhverfismála undanfarinn áratug. Skýr dæmi um það eru:
- Minni losun koltvíoxíðs og brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun með bindingu þessara jarðhitalofttegunda í stein
- Samstarf við svissneska fyrirtækið Climeworks um hreinsun og bindingu koltvíoxíðs úr andrúmslofti á Hellisheiði
- Aðstöðusköpun vegna orkuskipta í samgöngum með uppsetningu á hlöðum fyrir rafbíla
Unnið er samkvæmt fjölda samstarfssamninga og -áætlana um vísindi og tækni við háskólasamfélagið innanlands og erlendis. Samstarf atvinnulífs og háskólasamfélagsins er oftar en ekki forsenda þess að hugmyndir geti þróast yfir í raunveruleg verkefni sem nýtast atvinnulífinu.
Dæmi um slík verkefni sem unnið er að hjá OR samstæðunni og vonir eru bundnar við:
- Sporlaus vinnsla jarðhita
- Þróun á bindingu koltvíoxíðs með Carbfix-aðferðinni frá metanstöð Sorpu
- Orkuskipti í samgöngum á Íslandi og vetnisframleiðsla á Hellisheiði
- Djúpborun
- Stjórnun örvaðrar skjálftavirkni
- Bætt auðlindanýting á lághitasvæðum til framtíðar
- Gæði vatns og betri yfirsýn yfir dreifikerfi
- Nýting lífbrjótanlegs úrgangs úr fráveitu