Losunarkræfni koltvíoxíðs
Losunarkræfni er skilgreind sem losun miðað við aðra tiltekna einingu, til dæmis framleidda orku, tekjur eða aðrar kennitölur í viðkomandi starfsemi.
Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn til neytenda og heitt vatn sem selt er í heildsölu til Veitna. Kolefnislosun á framleidda einingu rafmagns og heits vatns hjá virkjunum Orku náttúrunnar hefur lækkað frá 2015 og er nú 7,4 g CO2 ígildi á kílówattstund. Hlutfallsleg niðurdæling koltvíoxíðs frá Hellisheiðarvirkjun var tæplega 30% árið 2021. Unnið er eftir áætlun um að Hellisheiðarvirkjun verði sporlaus árið 2025 og Nesjavellir árið 2030 sem þýðir að 95% koltvíoxíðs frá virkjununum verði fangað, bundið í berg eða hagnýtt.
Þess ber að geta óvissan fyrir losun er +/- 12% miðað við 95% óvissubil.
Veitur dreifa rafmagni og heitu vatni til neytenda, vinna neysluvatn og dreifa því ásamt því að reka fráveitu. Hjá Veitum hefur kolefnislosun vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu lækkað frá árinu 2015.
Kolefnislosun gagnaflutnings hjá Ljósleiðaranum hefur hækkað á hverja einingu gagnaflutnings vegna umfangsmikilla framkvæmda árið 2021.
Samstæða OR losar ekki ósoneyðandi efni vegna starfsemi sinnar.
Hlutfallsleg hreinsun koltvíoxíðs frá Hellisheiðarvirkjun 2013-2021
Lýsing | Eining | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Helstu stærðir | ||||||||
Losun GHL (umf. 1,2 og 3) | Tonn CO2íg-árs | 49.900 | 46.650 | 43.500 | 45.950 | 49.950 | 52.850 | 47.500 |
Velta | Milljarðar kr. | 40 | 41 | 44 | 46 | 47 | 49 | 52 |
Stærð húsnæðis | Þúsund m3 | 780 | 780 | 780 | 780 | 780 | 780 | 790 |
Losun á veltu | Tonn CO2íg-árs/milljarð kr. | 1.742 | 1.161 | 1.027 | 1.036 | 1.100 | 1.114 | 936 |
Losun á stærð húsnæðis | Tonn CO2íg-árs/þús. m3 | 90,0 | 61,6 | 57,9 | 61,5 | 65,7 | 69,4 | 61,5 |
Heitt vatn*: | ||||||||
Vegið meðaltal losunar á heitu vatni frá há- og lághita | gr. CO2íg-árs/kWst | 4,0 | 3,6 | 3,3 | 3,3 | 3,6 | 3,9 | 3,8 |
Rafmagn: | ||||||||
Losun við virkjun ON | gr. CO2íg-árs/kWst | 9,0 | 8,4 | 7,0 | 7,8 | 8,7 | 8,3 | 7,4 |
Losun dreifingar í byggð (Veitur) | gr. CO2íg-árs/kWst | 1,0 | 1,0 | 1,0 | 1,2 | 0,8 | 0,3 | 0,3 |
Samtals losun framleiðslu og dreifingar | gr. CO2íg-árs/kWst | 10,0 | 9,4 | 8,0 | 9,0 | 9,5 | 8,7 | 7,7 |
*Kolefnisspor lághita hefur verið metið u.þ.b. 0 gr/kWst
Losunarkræfni brennisteinsvetnis
Miðað við framleidda orkueiningu hefur losunarkræfni brennisteinsvetnis á Hellisheiði dregist saman frá árinu 2015 eða úr 6 grömmum á kílówattstund í 1 gramm og á Nesjavöllum lækkað og fór úr 4 grömmum á kílówattstund í 2 grömm.
Styrkur brennisteinsvetnis (H2S) í byggð fór ekki yfir viðmiðunarmörk í byggð árið 2021. Árangur markvissrar hreinsunar og niðurdælingar á brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun jókst árið 2021 miðað við árið 2020. Hlutfallsleg niðurdæling brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun var 80%.
Losun brennisteinsvetnis frá Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun var samtals um 8,3 þúsund tonn árið 2021. Unnið er eftir áætlun um að Hellisheiðarvirkjun verði sporlaus árið 2025 og Nesjavellavirkjun árið 2030 sem þýðir að nánast allt brennisteinsvetni frá virkjununum verði fangað og bundið í berg.
Þess ber að geta óvissan fyrir losun er +/- 12% miðað við 95% óvissubil.
Lýsing | Eining | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 |
Losun brennisteinsvetnis frá Hellisheiði og Nesjavöllum | Þúsund tonn | 12.9 | 12.1 | 10.3 | 8.8 | 10.7 | 11.7 | 8.3 |
Losun brennisteinsvetnis á framleidda einingu orku á Hellisheiði | gr. H2S/kWst | 6 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 |
Losun brennisteinsvetnis á framleidda einingu orku á Nesjavöllum | gr. H2S/kWst | 4 | 3 | 3 | 3 | 3 | 3 | 2 |
Hlutfallsleg hreinsun brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun 2013-2021
Mesta hreinsun koltvíoxíðs og brennisteinsvetnis frá upphafi
Árið 2021 var samanlögð hreinsun koltvíoxíðs og brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun um 20.800 tonn eða sú mesta frá upphafi.
Viðaukar og annað ítarefni
- Leiðbeiningar Umverfisstofnunar um losunarstuðla á vef stofnunarinnar
- Mælingar á styrk brennisteinsvetnis í rauntíma á vef Umhverfisstofnunar
- Umhverfisuppgjör samstæðu OR 2015-2021 (PDF)
- Losun gróðurhúsalofttegunda og losunarkræfni koltvíoxíðs og brennisteinsvetnis á Hellisheiði og Nesjavöllum (PDF)
- Styrkur brennisteinsvetnis í andrúmslofti og viðmiðunarmörk (PDF)
- Óvissugreininig koltvíoxíðslosunar frá Hellisheiðarvirkjun (PDF)