Stjórn OR hefur yfirumsjón með mati og stýringu loftslagstengdrar áhættu hjá samstæðu OR.
Stjórn fer yfir umhverfis- og auðlindastefnuna a.m.k. einu sinni á ári samkvæmt starfsáætlun. Stefnan kveður á um loftslags- og loftslagsáhættu og mikilvæga umhverfisþætti þeim tengdum. Stjórnin tekur á gloppum í stefnunni og leiðbeinir stjórnendum OR ef þörf krefur.
Loftslagsþættir og mikilvæg mál tengd loftslagi eru á dagskrá stjórnar á mánaðarlegum fundum. Þar metur stjórnin jöfnum höndum og fylgist með helstu áætlunum um loftslagsaðgerðir, loftslagsáhættu, framkvæmd og framvindu loftslagsmarkmiða, en einnig tækifæri sem í þeim felast.
Sjá nánar um stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í stjórnháttaköflum skýrslunnar.