Lánshæfismat er mikilvægt þeim fyrirtækjum sem skipta við fjármálastofnanir og eru með skráð verðbréf á mörkuðum. Matið hefur þann tilgang að gefa lánveitendum hlutlæga mynd af stöðu og framtíðarhorfum fyrirtækisins. Lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur og annarra íslenskra fyrirtækja getur aldrei orðið hærri en einkunn ríkissjóðs. Í dag meta þrjú fyrirtæki lánshæfi Orkuveitu Reykjavíkur; alþjóðlegu fyrirtækin Moody‘s og Fitch og Reitun innanlands.
Moody's | Fitch | Reitun | |
---|---|---|---|
Langtímaeinkun | Baa3 | BBB- | i.AA3 |
Horfur | Stöðugar | Stöðugar | Jákvæðar |
Útgáfudagur | September 2021 | Apríl 2021 | Ágúst 2018 |